Höskuldur Ásgeirsson hefur gert samkomulag við félagið um að hann láti af störfum sem forstjóri Nýsis hf þann 15. nóvember nk. Höskuldur tók við starfi forstjóra þann 1. desember 2007 og hefur stýrt félaginu í gegnum miklar aðhalds- og hagræðingaraðgerðir í rekstri sem skilað hafa miklum árangri, ásamt því að leysa úr þeirri erfiðu stöðu sem uppi hefur verið hjá félaginu sökum lánsfjárkreppunnar. Höskuldi eru þökkuð vel unnin störf fyrir félagið. Sigfús Jónsson tekur við starfi forstjóra félagsins. Nánari upplýsingar veitir Sigfús Jónsson í síma 8997802
- Forstjóraskipti
| Source: Nýsir hf.