Ársreikningur 2009


Sparisjóður Bolungarvíkur tilkynnir fjárhagslega endurskipulagningu og birting
ársuppgjörs fyrir 2009.
 
Bolungarvík, miðvikudaginn 26. maí 2010: Sparisjóður Bolungarvíkur tilkynnir að
samningum vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar sparisjóðsins er nú lokið
með samþykki allra kröfuhafa sparisjóðsins. Endanlegur frágangur bíður
samþykkis eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) en erindið var sent til umsagnar ESA í
apríl síðastliðinn. Fundur stofnfjáreigenda er boðaður þann 10. júní
næstkomandi þar sem farið verður yfir atriði fjárhagslegrar endurskipulagningar
sjóðsins og óskað samþykkis stofnfjáreigenda. Í tengslum við fjárhagslega
endurskipulagningu sparisjóðsins verða verðbréf sparisjóðsins afskráð úr
Kauphöll, en allir eigendur skuldabréfa sem gefin hafa verið út af sparisjóðnum
hafa samþykkt afskráningu fyrir sitt leyti.
 
Samhliða boðun fundar stofnfjáreigenda hefur stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur
samþykkt ársreikning fyrir árið 2009. Samkvæmt honum var tap á rekstri sjóðsins
2.260 milljónir og eigið fé var neikvætt en að teknu tilliti til fjárhagslegrar
endurskipulagningar er tapið 202 milljónir og CAD eigið fé 19,22%. Jákvæð áhrif
fjárhagslegrar endurskipulagningar sjóðsins sem miðast við 31.12.2009 koma ekki
fram í ársreikningi þar sem dráttur á afgreiðslu málsins var of mikill til að
hægt væri að taka tillit til þess í ársreikningi.
 
Helstu niðurstöður ársreiknings Sparisjóðs Bolungarvíkur fyrir árið 2009:

●  Tap eftir fjárhaglega endurskipulagningu varð 202 milljónir en er 2.260
   milljónir samkvæmt ársreikningi. 

●  Arðsemi eigin fjár eftir skatta var neikvæð.

●  Hreinar vaxtatekjur hækkuðu um 31,3% frá fyrra ári og voru 201 milljónir
   króna. 

●  Hreinar rekstrartekjur voru neikvæðar um 103 milljón króna.

●  Rekstrarkostnaður lækkar um 22,6%, þar af lækkar launakostnaður um 12,6% og
   annar rekstrarkostnaður lækkar um 29,3%.
 
●  Virðisrýrnun eigna nam 2.226 milljónum króna samanborið við 667 milljónir
   árið 2008. Þessi aukning er að mestu leyti tilkomin vegna virðisrýrnunar
   útlána sparisjóðsins í erlendum myntum. 

●  Heildareignir námu 6.846 milljónum króna í árslok 2009 og hafa dregist saman
   um 37,5% á árinu. 

●  Útlán til viðskiptamanna námu 3.746 milljónum króna í árslok 2009.
 
●  Innlán námu 3.758 milljónum króna í lok ársins 2009.

●  CAD-eiginfjárhlutfall verður 19,22% við lok ársins miðað við samninga um
   fjárhagslega endurskipulagningu en er neikvætt samkvæmt ársreikningi. 

Horfur fyrir árið 2010 eru ágætar og við frágang þeirrar fjárhagslegu
endurskipulagningar, sem nú bíður samþykkis ESA og fundar stofnfjáreigenda, á
rekstrargrundvöllur sparisjóðsins að vera tryggur. Getur sparisjóðurinn þá
tekið á ný stöðu sína sem bakhjarl í heimabyggð og lagt sín lóð á vogaskálarnar
við endurreisn íslensks samfélags. 

Aðalfundur Sparisjóðs Bolungarvíkur verður boðaður í framhaldi af fundi
stofnfjáreigenda sem haldinn verður fimmtudaginn 10. júní nk. þar sem
fjárhagsleg endurskipulagning sparisjóðsins verður lögð fram til samþykktar. 

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Sólbergsson, sparisjóðsstjóri, netfang:
asgeir@spbol.is í síma 450-7100.

Attachments

lykiltolur.pdf arsreikningur sparisjos bolungarvikur 31 12 2009.pdf