Uppgreiðsla á skuldabréfaflokki OFANVI 11 1


OFAN VÍ, fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf., gaf þann 22. desember 2011 út skuldabréfaflokkinn OFANVI 11 1, sem skráður er í Kauphöll Íslands.

Lántaki sjóðsins, Ofanleiti 1 ehf., hefur í dag tilkynnt sjóðnum að hann muni nýta sér rétt til uppgreiðslu. Í samræmi við skilmála skuldabréfaflokksins myndast uppgreiðsluskylda sjóðsins á flokknum. Uppgreiðslugjald nemur 1,0% af uppreiknaðri fjárhæð þeirrar afborgunar, sem greidd er umfram hina samningsbundnu afborgun á viðkomandi gjalddaga.

Næsti gjalddagi er 7. júní 2017 og verður flokkurinn greiddur upp þann dag.

Frekari upplýsingar veitir Anna Kristjánsdóttir, forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.: S: 444 7461