Ársuppgjör Farice 2017


Rekstrarhagnaður félagsins (hagnaður fyrir fjármagnsliði) var EUR 933 þúsund samanborið við EUR 25 þúsund árið 2016.

Tap félagsins var EUR 346 þúsund samanborið við EUR 11 milljónir árið 2016. Árið 2016 var reiknað gengistap EUR 7 milljónir en árið 2017 var EUR 2 milljóna gengishagnaður sem skýrir að mestu þennan mun.

Heildartekjur voru EUR 15 milljónir og jukust um 8,5% og EBITDA jókst um 10,8% í EUR 8 milljónir.

Eigið fé jókst úr 34% í 37%.

Farice er fyrirtæki á sviði gagnaflutninga- og fjarskiptasambanda við útlönd og er hluti af innviðum Íslands og ein af grunnstoðum íslensks samfélags.  Fyrirtækið rekur tvo sæstrengi á milli Íslands og Evrópu og kaupir framhaldssambönd á landi og býr þannig til samskiptakerfi fyrir Ísland sem tengist öðrum  samskiptakerfum í helstu tengistöðvum í Evrópu. Kerfisrekstur félagsins gekk vel eins og undanfarin ár og samband Íslands við umheiminn áreiðanlegt sem fyrr.

   

Nánari upplýsingar veitir Ómar Benediktsson í síma 585 9701.


Attachments

Farice ehf Financial Statement 2017 signed.pdf