N1 hf: Tilkynning vegna hluthafafundar


Vegna mistaka í fundarboði hluthafafundar N1 hf. sem boðað hefur verið til hinn 25. september nk. var sagt að allir núverandi stjórnarmenn félagsins hefðu þegar gefið kost á sér til endurkjörs sem var ekki rétt. Nú liggur fyrir að stjórnarmennirnir Þórarinn V. Þórarinsson og Jón Sigurðsson hafa tilkynnt formanni stjórnar að þeir muni ekki gefa kost á sér á hluthafafundi þann 25. september 2018.