Hluthafafundur Festi hf. (áður N1 hf.) var haldinn þann 25. september 2018 klukkan 10:00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Á fundinum voru eftirfarandi tillögur samþykktar, auk þess sem ný stjórn var kjörin:
- Ný samkeppnisstefna fyrir félagið var samþykkt, sbr. 25. gr. sáttar N1 við Samkeppniseftirlitið, dags. 30. júlí 2018.
- Endurskoðuð starfskjarastefna fyrir félagið var samþykkt.
- Samþykkt var tillaga stjórnar að reglum um tilnefninganefnd í starfsreglum stjórnar. Jafnframt var samþykkt að Sigrún Ragna Ólafsdóttir og Tryggvi Pálsson skipi tilnefningarnefnd félagsins. Í kjölfar hluthafafundar mun stjórn skipa þriðja nefndarmanninn úr sínum röðum.
- Samþykkt var að breyta nafni N1 hf. í Festi hf.
- Í stjórn félagsins voru kjörin eftirtalin:
- Björgólfur Jóhannsson, kt. 280855-3409
- Guðjón Karl Reynisson, kt. 131163-3209
- Kristín Guðmundsdóttir, kt. 270853-7149
- Margrét Guðmundsdóttir, kt. 160154-2419
- Þórður Már Jóhannesson, kt. 080773-5529
-
Á stjórnarfundi sem haldinn var í kjölfar fundarins var Margrét Guðmundsdóttir endurkjörinn sem formaður stjórnar og Þórður Már Jóhannesson kjörinn sem varaformaður stjórnar.