Heimavellir hf. - Innlausnarferli


Fredensborg ICE ehf. hefur ákveðið að nýta sér innlausnarrétt skv. 110. gr. l. nr. 108/2007 í tengslum við hlutabréf Heimavalla hf. Innlausnarferlið hefst mánudaginn 17. ágúst 2020 og lýkur mánudaginn 14. september 2020.

Frekari upplýsingar um innlausnarferlið má finna á heimasíðu Heimavalla hf., https://www.heimavellir.is/is/fredensborg-ice-ehf-1, þar er einnig að finna framsalseyðublað sem hluthafar Heimavalla hf. geta fyllt út til að framselja hluti sína til Fredensborg ICE ehf.

Tilkynning um innlausnarferlið verður einnig birt í Morgunblaðinu mánudaginn 17. ágúst 2020.

Frekari upplýsingar veitir fjárfestatengill Heimavalla hf.,

Erlendur Kristjánsson, s:669-6940, Erlendur@heimavellir.is