Heimavellir hf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum HEIMA071225, HEMA071248 og HEIMA100646


PWC er eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna HEIMA071225, HEIMA071248 og HEIMA100646.

Eftirlitsaðili hefur m.a. það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstæða útreikninga útgefanda á sérstökum skilyrðum skuldabréfaflokkanna.

PwC framkvæmdi könnun á útreikningum sérstakra skilyrða skuldabréfaflokkanna  HEIMA071225, HEIMA071248 og HEIMA100646.

Niðurstaða könnunar PwC er sú að PwC staðfestir að skuldabréfaflokkarnir HEIMA071225, HEIMA071248 og HEIMA100646 standast öll fjárhagsleg-og tryggingarleg skilyrði skuldabréfaflokkanna miðað við dagsetninguna 30.6.2020.

Við könnun PwC á sérstöku skilyrðum skuldabréfa flokkanna HEIMA071225 og HEIMA071248 kom í ljós að skilyrði um staðsetningu veðsettra eigna stæðist ekki miðað við 30.6.2020. Skýringin á framangreindu er sú að við uppfærslu á verðmati fjárfestingaeigna fyrir 30.6.2020 kom í ljós að verðmæti eignanna hefði breyst með þessum hætti vegna breyttra forsenda, meðal annars vegna áhrifa Covid-19. Útgefandi hefur vegna þessa samþykkt að bæta íbúðum í tveimur fasteignum við hinar veðsettu eignir og verður breytingum þinglýst á næstu dögum. Staðfestingaraðili hefur endurreiknað skilyrðin um staðsetningu veðsettra eigna með nýjum eignum og staðfestir að með þeirri viðbót standast skilyrðin.


Niðurstöðurnar má sjá hér í viðhengi.

Nánari upplýsingar veitir: Arnar Gauti Reynisson,

framkvæmdastjóri Heimavalla hf., Gauti@heimavellir.is, s:860-5300

Viðhengi



Attachments

PwC staðfesting vegna 071225 30.6.2020 PwC staðfesting vegna 100636 30.6.2020 PwC staðfesting vegna 071248 30.6.2020