Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021


Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021 ásamt þriggja ára áætlun er lögð fram í bæjarráði Garðabæjar 17. nóvember 2020.  Áætlunin verður lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar 19. nóvember 2020 og áætlað er að síðari umræða um áætlunina fari fram í bæjarstjórn 3. desember.

Samkvæmt áætluninni er rekstrarafgangur neikvæður fyrir A og B hluta 71 m.kr.  Gert er ráð fyrir að framkvæmdir nemi 3.544 m.kr., þar af fari til byggingar fjölnota íþróttahús 2.000 m.kr.

Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri nemi 9,5%, skuldahlutfall verði 118% og skuldaviðmið 88%.

Meðfylgjandi er fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021.

Viðhengi



Attachments

Fjárhagsáætlun Garðabær 2021-2024 fyrri umræða