Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2020


Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC).

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2020 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 22. mars 2021.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Hagnaður félagsins á árinu 2020 var 33.322 þús. kr. og í lok þess var eigið fé jákvætt sem nemur 288.768 þús. kr. skv. ársreikningi. Stjórnin mun ekki leggja til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána um 140 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru 68.791 þús. kr. á ársgrundvelli og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

Jakob Björgvin Jakobsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

Jeratún ehf.

Lykiltölur úr ársreikningum 2016-2020

Rekstrarreikningur20202019201820172016
Tekjur68.79167.01864.93463.45462.403
Rekstrargjöld-9.014-7.017-6.208-7.302-6.216
Afskriftir-4.507-4.495-4.369-4.358-4.343
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld-13.613-15.608-19.527-18.837-22.437
      
Hagnaður fyrir skatta41.65739.89834.83032.95729.407
Tekjuskattur-8.335-4.824000
Hagnaður ársins33.32235.07434.83032.95729.407
      
Efnahagsreikningur     
Fastafjármunir422.163425.801420.715425.085428.059
Veltufjármunir32.33332.93129.34523.32821.030
Eignir samtals454.496458.732450.060448.413449.089
      
Eigið fé288.768255.446216.372173.542130.585
Langtímaskuldir og skuldbindingar127.422150.011181.094222.857265.716
Skammtímaskuldir38.30653.27552.59452.01452.788
Eigið fé og skuldir samtals454.496458.732450.060448.413449.089
      
Yfirlit um sjóðstreymi     
Handbært fé frá (til) rekstri52.32243.41145.91741.18545.476
Fjárfestingahreyfingar000-1.384-3.468
Fjármögnunarhreyfingar-50.737-45.449-39.927-36.902-38.028
Handbært fé í árslok28.82327.23829.27623.28720.388
      
Kennitölur     
Veltufjárhlutfall0,840,620,560,450,40
Eiginfjárhlutfall63,54%55,69%48,08%38,70%29,08%

Viðhengi



Attachments

Jeratún ehf 2020 kt. 501203-2030 RSK