Árshlutareikningur REG 1 30.06.2021


Sérhæfði sjóðurinn REG 1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.

  • Hagnaður var af rekstri sjóðsins að fjárhæð 136 þús. kr. á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Hrein eign sjóðsins í júnílok 2021 nam 2,0 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2021, efnahagi hans 30. júní 2021 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2021, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar um árshlutareikning sérhæfða sjóðsins REG 1 veitir Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Stefnis í síma 444 7471.

Viðhengi



Attachments

REG 1 árshlutareikningur 2021