FÍ fasteignafélag slhf. - Söluferli


Eigendur FÍ fasteignafélags slhf. hafa ákveðið að hefja söluferli á félaginu. Eignasafn félagsins telur 11 fasteignir og samanstendur af fasteignunum við Amtmannsstíg 1, Ármúla 1, Álfheimum 74, Bankastræti 2, Bankastræti 7, Borgartúni 25, Hverfisgötu 103, Lækjargötu 3, Laufásveg 31, Víkurhvarfi 3 og Þverholti 11. Samtals er eignasafnið um 25 þúsund brúttó fermetrar.

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur umsjón með söluferlinu. Áhugasamir fjárfestar geta nálgast upplýsingar um skilyrði til þátttöku í söluferlinu, sölugögn og aðrar upplýsingar í gegnum netfangið fifasteignafelag@islandsbanki.is