Hampiðjan hf. – Kynningarfundur fyrir uppgjör fyrri árshelmings 2023 fimmtudaginn 31. ágúst.


Hampiðjan hf. mun birta uppgjör fyrir fyrri árshelming 2023 eftir lokun markaða fimmtudaginn 31. ágúst.

Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@hampidjan.is

Árshlutareikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 661-3361