Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Upplýsingar um birtingu árshlutauppgjörs fyrir tímabilið 1. mars 2023 - 31. ágúst 2023


Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. mun birta árshlutauppgjör félagsins fyrir tímabilið 1. mars 2023 til 31. ágúst 2023, eftir lokun markaða fimmtudaginn 12. október 2023.

Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 12. október 2023 klukkan 16:30. Á fundinum kynna stjórnendur rekstur og afkomu félagsins og svara spurningum.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði Ölgerðarinnar að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík. Fundinum verður einnig streymt.