S&P Global Ratings hækkar lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar í A-


Matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað lánshæfismat Landsvirkjunar um einn flokk, í A- úr BBB+, með stöðugum horfum. Hækkun á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar kemur í kjölfar hækkunar lánshæfismats ríkissjóðs Íslands í A+ úr A þann 10. nóvember sl.

Hækkun á lánshæfiseinkunninni endurspeglar mat S&P á sterkri fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og góðum horfum fyrir næstu misseri. Skuldir hafa lækkað mikið og fjárhagsleg áhætta minnkað síðustu ár. Landsvirkjun skilaði metafkomu á þriðja ársfjórðungi 2023 og útlit er fyrir að árið 2023 verði besta rekstrarár í sögu Landsvirkjunar.

Reykjavík, 15. nóvember 2023

Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri Fjármála og upplýsingatækni, í síma 515 9000, netfang: rafnar@lv.is