Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.9.2023


Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.09.2023

Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2023 á fundi sínum í dag 30. nóvember.

Hagnaður vegna hækkunar á eignasafni

Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 939 m.kr. og er hann allur tilkominn vegna hækkunar á virði fasteignamats eigna félagsins. Hagnaðurinn verður ekki innleystur nema með eignasölu.

Sjóðstreymi Félagsbústaða sýnir að handbært fé frá rekstri var 583 m.kr. samanborið við 1.088 m.kr. árið áður. Afborganir langtíma lána námu 1.003 m.kr. Helstu kennitölur reikningsins eru:

  • Rekstrartekjur tímabilsins námu 4.769 m.kr.
  • Afkoma fyrir matsbreytingu (EBITDA) nam 1.731 m.kr. eða 36,3% af rekstrartekjum
  • Matshækkun fjárfestingareigna á tímabilinu nam 3.819 m.kr.
  • Virði fjárfestingareigna í lok tímabilsins er 154.841 m.kr.
  • Eigið fé í lok tímabilsins er 84.706 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins er 54,3%
  • Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils nema 60.286 m.kr.

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða fyrstu 9 mánuði ársins 2023 námu 4.769 m.kr., er það aukning um 12,9% milli ára sem skýrist af hækkun leiguverðs vegna verðlagsbreytinga og stækkun eignasafnsins. Rekstur og viðhald eigna hækkar um 583 m.kr. eða um 29,3% á milli ára. Rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA%) er 36,3% samanborið við 42,8% á sama tíma árið áður.

Eignasafn og efnahagur

Heildareignir félagsins námu 155.997 m.kr. í lok tímabilsins en þær jukust um 4,1% frá ársbyrjun. Fjárfestingareignir jukust um 4,1% eða 6.129 m.kr., fjárfest var fyrir 1.891 m.kr. og matsbreyting nam 4.238 m.kr. Heildarskuldir nema 61.283 m.kr. og hækkuðu um 4.563 m.kr. fyrstu 9 mánuði ársins. Eigið fé jókst um 939 m.kr. á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall í lok tímabils var 54,3% en 56,1% í lok árs 2022.

Skuldabréfaútboð

Félagsbústaðir eru með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgja þeim reglum sem gilda um skráð félög. Samþykktir félagsins kveða einnig á um fyrirkomulag ýmissa þátta í starfseminni og eru þær aðgengilegar á vefsíðu þess ásamt þeim lögum sem gilda um félagið.

Ekki hafa verið tekin lán á árinu 2023. Félagið hefur fjármagnað fjárfestingar með útgáfu á félagslegum skuldabréfum í skuldabréfaflokknum FB100366 SB. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með ársfjórðungslegum jöfnum greiðslum til lokadags þann 10. mars 2066 og hann ber einfalda ábyrgð Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið gefnar út 18.800 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum. Flokkurinn er skráður á Sustainable Bond markaði Nasdaq Iceland.

Þróun eignasafns

Félagsbústaðir keyptu 31 fasteign á fyrstu 9 mánuðum ársins 2023 en áform voru um að fjölga íbúðum um 49. Seldar voru 3 fasteignir og 2 bílskúrar á tímabilinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is, sími 520 1500

Viðhengi



Attachments

Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.09.2023 Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.09.2023 undirritaður