Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 8. nóvember sl. er nú lokið.

Í 3. viku 2024 keypti Síminn hf. 6.000.452 eigin hluti að kaupverði 57.829.283 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
15.1.202412:031.500.0009,70014.550.000272.998.548
16.1.202412:231.500.0009,72514.587.500274.498.548
17.1.202409:471.500.0009,65014.475.000275.998.548
18.1.202409:361.500.4529,47514.216.783277.499.000
  6.000.452 57.829.283277.499.000


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 8. nóvember 2023. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.000 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2024, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 271.498.548 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 277.499.000 eða sem nemur 9,99996% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 67.500.452 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,43% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 621.266.783 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.