Lánasjóður sveitarfélaga - Ársuppgjör og kynningarfundur


Áætlað er að stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. samþykki ársreikning sjóðsins fyrir árið 2023 á stjórnarfundi, þriðjudaginn 27. febrúar 2024 og verður hann birtur í kjölfarið.

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 28. febrúar kl. 12.00 á skrifstofu sjóðsins, Borgartúni 30, 5. hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Boðið verður upp á nettar veitingar.

Boðið er að sækja fundinn rafrænt í gegnum Teams. Þáttakendur beðnir um að staðfesta þátttöku á fundinum með því að senda tölvupóst á ottar@lanasjodur.is og tiltaka hvort þeir hyggjast mæta á staðfund eða sækja fundinn rafrænt.


Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949