- Landsbankinn verður viðurkenndur ráðgjafi (CA) á First North


OMX Nordic Exchange á Íslandi hefur samþykkt að Landsbanki Íslands verði
viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland.
Landsbankinn verður þar með fyrstur til að fá þetta hlutverk á íslenska
markaðnum. Hlutverk CA felst í að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar
skráningarferlið stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við
markaðinn meðan bréf félags eru til viðskipta á markaðnum. CA fyrirkomulagið er
hannað til að byggja traustan markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því
að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á
First North. 

Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla
ákveðin skilyrði. Þau helstu eru að CA þarf að: 
   - vera lögaðili
   - hafa nægilega marga starfsmenn
   - tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri
     reynslu í fjármálaþjónustu við fyrirtæki 
   - setja innri reglur um viðskipti með hluti í félögum sem þiggur þjónustu
     Certified Adviser 
   - hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga

Landsbankinn verður CA í þágu Century Aluminum Company en bréf þess félags
verða tekin til viðskipta á First North Iceland 14. júní nk. First North býður
Landsbankann velkominn til starfa sem Certified Adviser.