Lokað hlutafjárútboð hefst í dag Stjórn Marel Food Systems hf. samþykkti á stjórnarfundi þann 29. nóvember 2007 að hækka hlutafé félagsins með útboði á nýjum hlutum, sem nema um 8% af heildarhlutafé félagsins, til takmarkaðs hóps hæfra fjárfesta í skilningi laga um verðbréfaviðskipti. Heildarsöluandvirði útboðsins er á bilinu 2,7-2,9 ma.kr. Marel Food Systems hyggst gefa út nýja hluti að söluandvirði EUR 147 milljónir til að fjármagna kaupin á Stork Food Systems og breikka hluthafahóp félagsins. Framangreint útboð er fyrsta skrefið í öflun þeirra fjárhæðar sem félagið ráðgerir að afla með sölu hlutafjár. Þegar skilyrði kaupanna á Stork Food Systems hafa verið uppfyllt er stefnt að frekari sölu á nýjum hlutum í Marel Food Systems í útboði til forgangsréttarhafa. Landsbanki Íslands hf. (Landsbankinn) hefur umsjón með útboðinu og sölutryggir það. Samantekt á útboðinu • Útboð nýrra hluta til takmarkaðs hóps hæfra fjárfesta, sbr. skilgreiningu laga. • Marel Food Systems hyggst gefa út allt að 29.800.000 nýja hluti, sem nema um 8% af heildarhlutafé félagsins. • Verðbréfamiðlun Landsbankans mun taka við áskriftum í dag, 29. nóvember 2007, og til kl. 16:00 þann 3. desember 2007. Marel Food Systems og Landsbankinn áskilja sér hins vegar rétt til að loka útboðinu fyrr ef um umframáskrift verður að ræða. • Marel Food Systems mun, í samráði við Landsbankann, úthluta nýjum hlutum og áskilur sér rétt til þess að hafna einstökum áskriftum, að hluta til eða öllu leyti. • Tilkynnt verður um niðurstöður útboðsins í kjölfar útboðsins eða eigi síðar en kl. 10:00 þriðjudaginn 4. desember 2007. • Fjárfestar skulu greiða kaupverð nýju hlutanna eigi síðar en kl. 16:00 mánudaginn 10. desember 2007. • Stjórn Marel Food Systems mun nýta heimild til hlutafjárhækkunar sem veitt var á hluthafafundi félagsins 5. júlí 2007, þar sem hluthafar félagsins féllu frá forgangsrétti að hinum nýju hlutum. • Verð nýju hlutanna verður á bilinu 92-96 krónur á hlut. • Gert er ráð fyrir að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta í OMX fimmtudaginn 13. desember 2007. Nánari upplýsingar veita: Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems, í síma 563-8072 Stefán Þór Bjarnason, Forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbanka Íslands, í síma 410-7340 Arnar Arnarsson, Verðbréfamiðlun Landsbanka Íslands, í síma 410-7330