Stjórn FL Group hf. ákvað þann 20. desember 2007 að nýta heimild í d-lið 2. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins, sem samþykkt var á hluthafafundi félagsins þann 14. desember 2007, um að gefa út nýtt hlutafé til að nafnverði kr. 3.659.265.291, á genginu 14,7. Hlutaféð verður eingöngu nýtt til að fjármagna kaup félagsins á fasteignafélögum og -sjóðum frá Baugi Group hf. og tengdum félögum og verða hlutirnir afhentir Baugi Group í því skyni. Heildarhlutafé félagsins er kr. 13.584.265.973 eftir hækkunina. Frekari upplýsingar veitir: Halldór Kristmannsson Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Sími: 591 4400 / 669 4476