Eftirfarandi tillögur verða lagðar fram á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 3. mars 2008. Greiðsla arðs Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf., haldinn 3. mars 2008, samþykkir að greiddur verði arður að fjárhæð 2.100.000.000 krónur, sem svarar til um 1,94 krónum á hvern hlut. Arðleysisdagur verður 4. mars og arðsréttindadagur 6. mars. Útborgunardagur arðs verður 7. mars 2008. Tillaga um starfskjarastefnu 1. Tilgangur. Starfskjarastefna Tryggingamiðstöðvarinnar hf. miðar að því að Tryggingamiðstöðin, ásamt dótturfélögum, sé samkeppnishæf og geti ráðið til sín framúrskarandi starfsfólk í þeim tilgangi að tryggja áframhaldandi vöxt og velgengni félagsins. Í því skyni ber að hlúa vel að kjörum stjórnenda félagsins þannig félagið fái notið starfskrafta þeirra sem allra best. Starfskjarastefnan nær til helstu grundvallaratriða í starfs- og launakjörum forstjóra og stjórnenda félagsins. Stefnan er liður í að gæta langtímahagsmuna eigenda félagsins, starfsfólks og annarra hagsmunaaðila með skipulegum, einföldum og gegnsæum hætti. 2. Starfskjör stjórnarmanna. Þóknun til stjórnarmanna og varamanna fyrir komandi starfsár skal ákveðin á aðalfundi ár hvert og skal þóknunin taka mið af þeim tíma sem stjórnarmenn verja til starfans, þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir og afkomu félagsins. 3. Starfskjör forstjóra. Starfskjör forstjóra skulu ítarlega tilgreind í skriflegum ráðningarsamningi, þar á meðal föst laun, árangurstengdar greiðslur, kaupréttur, lífeyrisréttindi, orlof, önnur hlunnindi og uppsagnarfrestur, svo og, eftir atvikum, eftirlaunaréttindi og greiðslur við starfslok. 4. Starfskjör stjórnenda. Starfskjör annarra æðstu stjórnenda félagsins, sem nánar skulu tilgreind í skriflegum ráðningarsamningum, skulu einnig taka mið af sjónarmiðum 3. gr. eftir því sem við á. 5. Endurskoðun starfskjarastefnu. Upplýsingagjöf. Starfskjarastefna félagsins skal tekin til endurskoðunar ár hvert og borin undir aðalfund félagsins til samþykktar eða synjunar. Á næsta aðalfundi ber stjórn að gera grein fyrir kjörum stjórnenda og stjórnarmanna félagsins auk þess að skýra frá framkvæmd starfskjarastefnunnar. Frávik frá starfskjarastefnunni skulu rökstudd sérstaklega í hverju tilviki og færð til bókar. Gera skal árlega grein fyrir launum og öðrum starfskjörum stjórnar og æðstu stjórnenda í ársskýrslu félagsins. Tillaga um þóknun stjórnar Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf., haldinn 3. mars 2008, samþykkir að þóknun stjórnarmanna verði með eftirfarandi hætti: Þóknun formanns verði 300.000 krónur á mánuði og annarra stjórnarmanna 150.000 krónur. Tillaga um endurskoðendur Tillaga er gerð um endurskoðunarfélagið KPMG endurskoðun hf. sem endurskoðendur félagsins starfsárið 2008.