- Coldwater Seafood Ltd. hefur 90 daga endurskiplagningarferli í Redditch


Coldwater Seafood Ltd., dótturfélag Icelandic Group, hefur hafið lögbundinn 90
daga samningaferil varðandi endurskipulagningu á rekstri Coldwater í Redditch. 
Ferillinn hefst á því að verkalýðsfélög á svæðinu, ásamt fulltrúum starfsmanna
félagsins í Redditch, eru upplýstir um fyrirhugaða endurskipulagningu. 

Á meðan á samningaferlinu stendur mun Coldwater Seafood skoða alla valkosti
varðandi endurskiplagningu á rekstrinum. 

Hjá Coldwater Seafood í Bretlandi starfa um 900 starfsmenn í þremur
verksmiðjum, tvær eru í Grimsby og ein í Redditch.