Ársreikningur Heklu fasteigna ehf. fyrir árið 2007 var staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins á stjórnarfundi þann 27. mars 2008. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Ársreikningurinn hefur fengið fyrirvaralausa áritun löggilts endurskoðanda félagsins. Rekstur Heildartekjur Heklu fasteigna ehf. námu á árinu 185 millj. kr. og rekstrargjöld námu 46,4 millj. kr. Rekstrarhagnaður, EBITDA, nam því 138,6 millj. kr. Að teknu tilliti til matsbreytinga fjárfestingaeigna og fjármagnsliða nam hagnaður fyrir tekjuskatt 145,1 millj. kr. og hagnaður ársins nam 118,8 millj. kr. Efnahagur Heildareignir Heklu fasteigna ehf. voru í árslok bókfærðar á 2.023,9 millj. kr. Heildarskuldir félagsins námu á sama tíma 1.724,3 millj. kr. Í árslok 2007 var eigið fé Heklu fasteigna ehf. 299,6 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 14,8%. Nánari upplýsingar veitir Birgir Sigurðsson, framkvæmdastjóri, sími: 590 5000, netfang: birgir@hekla.is.
- 2007
| Source: Hekla fasteignir ehf.