OMX Nordic Exhcange Iceland hf. (Kauphöllin) hefur samþykkt framkomna beiðni OMX AB um töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum hjá Kauphöllinni. OMX AB uppfyllir ekki lengur skilyrði Kauphallarinnar um dreifingu hlutafjár, sjá nánar í tilkynningu frá félaginu, dagsett 17. mars 2008. Hlutabréf félagsins verða tekin úr viðskiptum eftir lokun viðskipta föstudaginn 2. maí 2008 með vísan til ákvæðis 7.1 í Skilyrðum Kauphallarinnar fyrir töku hlutabréfa til viðskipta.