Í framhaldi af tilkynningu stjórnar Alfesca 27. maí sl. er nú hægt að upplýsa að Alfesca gerði í dag samkomulag við ELL162 ehf, sem er eignarhaldsfélag hans hátignar Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani, um að eignarhaldsfélagið muni skrá sig fyrir 850,000,000 nýjum hlutum af höfuðstól félagsins. Nýju bréfin verða gefin út á áskriftarverði sem er 6,45 ISK fyrir hvern hlut og eftir þessa aukningu verður þarna um að ræða 12,6% eignarhlut í félaginu. Áskriftin er háð skilyrðum, m.a. um að Alfesca birti útgáfulýsingu (prospectus). Gert er ráð fyrir að fjárfestingunni verði lokið innan 8 vikna. Þessi fjárfesting kemur í kjölfar þess að aðilar hafa átt í nánum viðræðum og byggt upp samband undanfarin tvö ár. Stjórn Alfesca býður hans hátign hjartanlega velkominn í hluthafahópinn en framundan eru spennandi tímar við að þróa Alfesca frekar. Frekari upplýsingar veitir: Antony Hovanessian Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar +354 477 7000