- Stýrivextir Seðlabanka Íslands óbreyttir


Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýri¬vöxtum
bankans nú. Þeir verða áfram 15,5%. Í Peningamálum sem bankinn birtir á
heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag eru færð rök fyrir ákvörðun bankastjórnar. 

Næsta reglulega ákvörðun bankastjórnar um stýrivexti verður birt fimmtudaginn
11. september 2008.