Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 09 0612 og RIKB 10 0317


Fimmtudaginn 21. ágúst klukkan 14:00 fer fram útboð í tveimur flokkum
ríkisbréfa með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 10.000 milljónir króna að nafnverði
í RIKB 09 0612 og 5.000 milljónir króna að nafnverði í RIKB 10 0317. Einungis
aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðunum en þeir
annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón
króna að nafnvirði. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 25. ágúst 2008.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: 

Flokkur	          	  
RIKB 09 0612

Lokagjalddagi
12.06.2009

Útistandandi fjárhæð
29.205 m.kr.

Lánstími
9 mán.

Flokkur
RIKB 10 0317

Lokagjalddagi
17.03.2010

Útistandandi fjárhæð
25.549 m.kr.

Lánstími
1,5 ár

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða-
og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.

Attachments

skilm18agust.pdf bloom18aug.pdf