Exista óskar eftir að hlutabréf félagsins verði tekin úr viðskiptum úr kauphöll


Stjórn Exista hefur óskað eftir því við Nasdaq OMX Nordic Exchange á Íslandi
(kauphöllin) að hlutabréf félagsins verði tekin úr viðskiptum úr kauphöllinni.
Beiðnin er í samræmi við niðurstöðu hluthafafundar Exista 30. október 2008, þar
sem samþykkt var með öllum greiddum atkvæðum að óska tafarlausrar afskráningar
hlutabréfa félagsins úr kauphöllinni. 
 
Í greinargerð félagsins til Kauphallarinnar eru einkum þrjár ástæður
tilgreindar til grundvallar ákvörðuninni: 

1. Óvissa ríkir um þessar mundir um stöðu og framtíð Exista. Stjórnendur Exista
eru í viðræðum við fjármálastofnanir og stjórnvöld til þess að fá skýrari mynd
um innlausn þeirra krafna sem félagið á gagnvart íslenskum bönkum. Auk þess er
félagið í viðræðum við innlenda og erlenda lánveitendur um endurskoðun á lánum
og öðrum skuldbindingum félagsins. Óvissa af þessum toga hindrar eðlilega
verðmyndun í félaginu og kann að leiða til mismunar á milli fjárfesta. 

2. Það er mat stjórnar Exista, með hagsmuni félagsins og allra hluthafa þess að
leiðarljósi, að mjög mikilvægt sé að félagið geti brugðist skjótt við og tekið
allar nauðsynlegar ákvarðanir fyrir félagið eins fljótt og mögulegt er, án
tillits til þeirra upplýsinga- og tilkynningarskyldu sem fylgir skráðum
félögum. 

3. Einstakar aðstæður ríkja nú á íslenskum fjármálamarkaði í kjölfar hruns
fjármálakerfisins og er að mati Exista ekki hægt að treysta á eðlilegt jafnvægi
framboðs og eftirspurnar á opnum markaði. Þegar við bætist óvissa um félagið
sjálft, þá eru verulegar líkur á því að það geti beinlínis skaðað hagsmuni
allra hluthafa Exista að opna fyrir viðskipti með félagið á skráðum markaði.