- Nýi Kaupþing Banki kaupir stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu


Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings og sveitarstjóri Borgarbyggðar
Páll Brynjarsson hafa undirritað samkomulag um að Nýi Kaupþing Banki kaupi
stofnfjárhlut Borgarbyggðar í Sparisjóði Mýrasýslu. Kaupin eru háð samþykki
stjórnar Nýja Kaupþings Banka, sveitarstjórnar Borgarbyggðar, eftirlitsstofnana
og því að samningar náist við lánveitendur sparisjóðsins um áframhaldandi
fyrirgreiðslu. 

Með þessu er búið að draga úr óvissu varðandi afdrif Sparisjóðs Mýrasýslu en
kaupin eru liður í endurskipulagningu sjóðsins. 

Nánari upplýsingar veita:

Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Nýja Kaupþings í síma 444 7000
Páll Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar í síma 433 7100