Viðskipti með hlutabréf SPRON í Kauphöll Íslands


SPRON hefur á undanförnum vikum unnið að því að styrkja eiginfjárstöðu
félagsins í náinni samvinnu við stjórnvöld og erlenda lánaveitendur en
eiginfjárstaða SPRON veiktist umtalsvert við fall bankanna í október.  Í ljósi
þeirrar óvissu sem ríkt hefur á fjármálamarkaði í kjölfarið, hefur verið lokað
fyrir viðskipti með hlutabréf í SPRON og verður lokað fyrir viðskiptin enn um
sinn.  Áframhaldandi stöðvun viðskipta er í samræmi við vilja stjórnenda SPRON
og hefur verið óskað eftir því að ekki verði opnað fyrir viðskipti fyrr en
viðræður við stjórnvöld og erlenda lánveitendur hafa verið til lykta leidd. Er
niðurstöðu þeirra viðræðna að vænta áður en langt um líður. 

Frekari upplýsingar veitir: 

Guðmundur Hauksson forstjóri, sími: 550 1213.