UNDIRRITUN SAMNINGA Í TENGSLUM VIÐ ÚTGÁFU ÍBÚÐABRÉFA OG VIÐSKIPTAVAKT Á EFTIRMARKAÐI


16. desember var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við
útgáfu Íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er
að styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. 

Frá 17. desember  2008 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig
"Aðalmiðlara með Íbúðabréf". Þær eru: Nýi Glitnir banki hf., Nýi Kaupþing banki
hf., MP banki hf., NBI hf. og  Straumur - Burðarás Fjárfestingarbanki hf. 

Með undirritun nýrra samninga,  fellur úr gildi „Samningur um aðalmiðlarakerfi
við útboð íbúðabréfa og um viðskiptavakt íbúðabréfa á eftirmarkaði“ dagsettur
18. júní s.l.. 

Helstu atriði samningsins eru þessi:

•          Aðalmiðlarar/Viðskiptavakar hafa einir aðgang að útboðum
Íbúðalánasjóðs. 
•          Aðalmiðlarar/Viðskiptavakar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem
           Íbúðalánasjóður veitir.
•          Aðalmiðlari/Viðskiptavaki skuldbindur sig til að setja fram
markaðsmyndandi 
           tilboð í útboðum Íbúðabréfa fyrir a.m.k. 300 milljónir króna.
•          Aðalmiðlari/viðskiptavaki er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla 
           markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki
50 
           m.kr. að nafnvirði í hvern flokk Íbúðabréfa í OMX Nordic Exchange á
Íslandi. 
•          Aðalmiðlari/viðskiptavaki skuldbindur sig til þess að verðmunur
kaup- og 
           sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru
skilgreind í 
           samningunum.
•          Aðalmiðlara/viðskiptavaka er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10
mínútna 
           frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á
einum 
           viðskiptadegi fyrir 300 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er
honum 
           heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
•          Samningurinn gildir frá 17. desember 2008 til 30. júní 2009. Þóknun
til 
           allra aðalmiðlara/viðskiptavaka íbúðabréfa verður 12,5 milljónir
króna 
           fyrir viðskiptavakt á eftirmarkaði fyrir hvern ársfjórðung og 0,15%
þóknun 
           í útboðum Íbúðabréfa.

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar
um réttindi og skyldur samningsaðila.

Attachments

adalmidlarasamningur 17 12 2008-2009.pdf