NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur móttekið tilkynningu frá Straumi-Burðaráss Fjárfestingabanka hf. (Straumur) þar sem fram kemur að fjárhagsstaða félagsins hafi versnað svo mjög að óvíst sé að bankinn geti sinnt skyldum sínum í samræmi við ákvæði aðildarreglna NOREX kauphallanna. Í samræmi við tilkynningu félagsins hefur Kauphöllin tekið ákvörðun um að loka fyrir aðgang Straums að viðskiptakerfi Kauphallarinnar.
Lokað fyrir aðild Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka að viðskiptakerfi Kauphallarinnar
| Source: NASDAQ Iceland hf.