Aðalfundur Marel Food Systems hf., sem fram fór í höfuðstöðvum félagsins í dag, var vel sóttur af hluthöfum félagsins. Fundarmenn stóðu fyrir samtals 82,48% af hlutafé félagsins. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra ávarpaði fundinn. Tillögur þær sem lagðar voru fyrir fundinn voru samþykktar samhljóða. Meðfylgjandi eru niðurstöður aðalfundarins og nýjar samþykktir félagsins.