- Aðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 2. apríl 2009 og hefst kl. 16:00.


Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn í fundarsal að Flatahrauni 3,
Hafnarfirði, fimmtudaginn 2. apríl 2009 og hefst kl. 16:00. 


Á dagskrá fundarins verða:

1.  Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.

2.  Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr.
    hlutafélagalaga. 

3.  Önnur mál, löglega upp borin.

Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. 

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf
aðalfundar. 

Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur
stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. 

Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það
skriflega. 



Stjórn Hampiðjunnar hf.