Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 17. apríl sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 10 1210 fyrir samanlagt 154,1 m.kr., RIKB 13 0517 fyrir samanlagt 337 m.kr. og í RIKB 19 0226 fyrir samanlagt 945,4 m.kr. og því nemur selt magn með uppgjöri 22. apríl í flokknum RIKB 10 1210 alls 1.695,1 m.kr., RIKB 13 0517 alls 3.712 m.kr. og í RIKB 19 0226 alls 11.029,4 m.kr. að nafnvirði.
Útboð RIKB 10 1210, RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226 viðbótarútgáfa
| Source: Ríkissjóður Íslands - Lánamál ríkisins