Tilkynning frá Milestone vegna húsleitar sérstaks saksóknara


Í gær gerði sérstakur saksóknari húsleit hjá Milestone vegna athugunar á
starfsemi Sjóvá-almennra trygginga hf. Af því tilefni vill Milestone ehf. koma
eftirfarandi á framfæri: 

Milestone fékk fyrst í gær staðfest að starfsemi Sjóvár væri til athugunar hjá
embætti sérstaks saksóknara. Við húsleit veitti Milestone embættinu allar
umbeðnar upplýsingar og átti samstarf við starfsmenn saksóknara við öflun
gagna. 

Félagið leggur áherslu á að allar upplýsingar um starfsemi og ávöxtunarleiðir
Sjóvá liggja uppi á borðum. Starfsemin og ávöxtunarleiðir Sjóvá hafa verið
undir ströngu eftirliti opinberra aðila. Ekkert ætti því að koma
eftirlitsaðilum á óvart í þessum efnum. Ástæða er hins vegar til að árétta í
kjölfar þeirrar umræðu sem verið hefur að það er beinlínis hlutverk
fjármálafyrirtækisins Sjóvá að ávaxta vátryggingarskuld og eigið fé með ábyrgum
hætti til að félagið geti staðið skil á sínum skuldbindingum. 

Milestone hefur sem eigandi fjármálafyrirtækja lagt á það áherslu að
dótturfélögin fari að einu og öllu eftir reglum sem gilda um starfsemi þeirra.
Sérstaklega hefur verið lögð áhersla á góð samskipti við eftirlitsaðila og að
starfsemi félaganna sé gegnsæ. Milestone hefur um nokkurt skeið starfað undir
eftirliti frá sænska fjármálaeftirlitinu sem eigandi að sænsku
fjármálasamstæðunni Moderna Finance AB, móðurfélagi Sjóvá. Undir hatti Moderna
Finance störfuðu átta fjármálafyrirtæki sem hvert um sig var undir eftirliti í
viðkomandi landi. Til að meta fjárhagslegan styrk móðurfélagsins Milestone var
lagt mat á heildaráhættur innan samstæðunnar m.a. með tilliti til
gjaldeyrisáhættu og viðskipta við tengda aðila. Hlutverk móðurfélagsins var að
haga ávöxtunarstefnu dótturfélaga þannig að farið væri eftir reglum um
fjárfestingarstarfsemi í hverju landi en á sama tíma væri áhætta móðurfélagsins
metin. Þessari stefnu var framfylgt í gegnum stjórnarsetur í dótturfélögum. 
Áréttað skal sérstaklega að í tilviki Sjóvá eru útbúin reglulega yfirlit yfir
ávöxtunarleiðir félagsins á hverjum tíma. Þessi yfirlit eru lögum samkvæmt send
Fjármálaeftirlitinu til skoðunar. Í yfirlitunum kemur m.a. fram flokkun
ávöxtunarleiða eftir einstökum greinum þ.m.t. fasteignum. Rétt er að taka fram
að í reglum sem gilda um ávöxtunarleiðir vátryggingafélaga er heimilað að allt
að 40% af sjóðum félagsins sé fjárfest í fasteignum.  Ekki eru sett skilyrði um
að allar fjárfestingar séu á Íslandi. Eins og í ljós hefur komið felst
áhættudreifing í að ávaxta sjóði í erlendum eignum samhliða íslenskum
fjárfestingum. Í samskiptum við sænska eftirlitsaðila m.a. við stjórn Moderna
Finance komu einatt fram þau sjónarmið að fjárfestingar Sjóvá í íslenskum
eignum undanfarin tvö ár teldist til áhættufjárfestinga. Ávöxtunarleiðir Sjóvá
og reyndar fjármálasamstæðunnar allrar endurspegla þessi sjónarmið eins og
glöggt má sjá af því að hlutfall íslenskra eigna af heildareignum samstæðunnar
minnkaði verulega síðustu tvö árin. 

Milestone hefur ekki verið kynnt hvert er tilefni athugunar sérstaks saksóknara
þannig að ekki er kostur að koma á framfæri sértækum athugasemdum við hana á
þessi stigi. Félagið hefur lýst sig reiðubúið að aðstoða við könnunina eftir
því sem kostur er. Félagið treystir því að vönduð könnun saksóknara á þessum
málefnum muni leiða í ljós að farið hafi verið að lögum í starfsemi og
fjárfestingum Sjóvá. 

Milestone harmar þau áhrif sem umræða um Sjóvá hefur haft á starfsmenn og
viðskiptavini félagsins. 

Guðmundur Ólason, forstjóri