- Skuldabréf Nýsis tekin úr viðskiptum


NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur ákveðið að taka skuldabréf Nýsis hf.
úr viðskiptum sbr. ákvæði 8.5.1 í reglum Kauphallarinnar með vísan til
tilkynningar frá félaginu dags. 15. október 2009 þar sem fram kemur að félagið
hafið verið tekið til gjaldþrotaskipta. 

Skuldabréf Nýsis hf. verða tekin úr viðskiptum við lok viðskipta þann 16.
október 2009.