Útboð ríkisvíxla RIKV 10 0517


Miðvikudaginn 13. janúar kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 0517 sem er með gjalddaga 17. maí 2010. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt
að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudaginn 15. janúar 2010.

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi
mánudaginn 18. janúar 2010. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.

Attachments

utbodsskilmalar_rikv100517_100108.pdf frett_rikv100517_100108.pdf