- Askar Capital verður viðurkenndur ráðgjafi (CA) á First North Iceland


NASDAQ OMX Iceland hf. hefur samþykkt að Askar Capital hf. verði viðurkenndur
ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Hlutverk CA felst í
að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir og
vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru
til viðskipta á markaðnum. CA fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan
markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær
aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North. 

Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla
ákveðin skilyrði.  Þau helstu eru að CA þarf að: 
- vera lögaðili. 
- hafa nægilega marga starfsmenn. 
- tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri
  reynslu í fjármálaþjónustu við fyrirtæki. 
- setja innri reglur um viðskipti með hluti í félögum sem þiggja þjónustu
  Certified Adviser. 
- hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga.

First North Iceland býður Askar Capital hf. velkomið til starfa sem Certified
Adviser.