Ársreikningur 2009


Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er
breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. 
Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar
verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi
sambandsins flokkast því undirað vera á vettvangi sveitarfélaga. 

Á árinu 2009 voru lífeyrisskuldbindingar sambandsins og Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja settar inn í ársreikninginn. Skuldbindingin nam 78,8 milljónum króna
í ársbyrjun en 73,7 milljónum króna í árslok. 

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500
millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti.
Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem
sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun
hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir
hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu
lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í 
afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til
skuldareigenda. Í lok ársins 2009 námu eftirstöðvar lánsins 289,5 millj. kr. og
eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. 

Tekjuafgangur sambandsins á árinu 2009 nam rúmum 9,4 milljónum kr. og eigið fé
í lok ársins 2009 nam 40,4 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi
sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur
sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. 

Berglind Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

Attachments

lykiltolur.pdf arsreikningur sambands sveitarfelaga a suurnesjum 2009.pdf