Aðgangur Byr Sparisjóðs og Byr verðbréfa að viðskiptakerfi Kauphallarinnar


NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur tekið þá ákvörðun að loka tímabundið
fyrir aðgang Byr sparisjóðs (Kauphallarauðkenni: BYR) og Byr verðbréfa
(Kauphallarauðkenni: BYRV) að viðskiptakerfi Kauphallarinnar, með vísan til
yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á rekstri Byrs.