Útboð verðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414


Annað útboð á verðtryggðum ríkisbréfum í flokki RIKS 21 0414 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 11:00 í dag. Útboðinu
var þannig háttað að bjóðendum buðust öll samþykkt tilboð á sama verði. Hæsta
samþykkta ávöxtunarkrafa ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

Alls bárust 38 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 13.721 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 6.471 m.kr. að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 3,69%. 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 27.
apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 28. apríl 2010.

Attachments

niurstour riks.23.apr.2010.pdf