Ársreikningur 2009


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2009 var tekinn til fyrri umræðu á
fundi sveitarstjórnar miðvikudaginn 26. maí 2010 og vísað til seinni umræðu en
samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikning sveitarfélags á
tveimur fundum í sveitarstjórn. 

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikninga fyrir þær rekstrareiningar sem
falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekin ársreikning fyrir
alla starfsemi þess það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr.
45/1998. 

Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með
skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustustöð. Til B
hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru
í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar
íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s. 

Samkvæmt rekstrarreikningi 2009 námu rekstrartekjur A og B hluta 965,3 millj.
kr. samanborið við 958,9 millj. kr. árið 2008. Hækkun milli ára er 0,7%. 

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem
námu samtals 981,0 millj.kr., en voru 924,4 millj. kr. á árinu 2008. Hækkun frá
fyrra ári nemur 6,1%. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2009 námu 115,0 millj.
kr. samanborið við 383,4 millj. kr.árið 2008. Lækkun fjármagnsgjalda umfram
fjármunatekjur milli ára skýrist af hagstæðari þróun gengis og verðlags á árinu
2009 samanborið við árið 2008. 

Rekstrarniðurstaða ársins er því neikvæð um 130,7 millj. kr. fyrir A og B hluta
samanborið við neikvæða rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 348,9 millj. kr. á árinu
2008. 

Frekar upplýsingar veitir:
Indriði Indriðason, fjármálastjóri indridi@rang.is og í síma 488‐7000

Attachments

arsreikningur rangarings ytra 2009.pdf