Árshlutareikningur fyrir tímabilið janúar - júní 2010


Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til
júní 2010 er lagður fram í borgarráði í dag fimmtudaginn 23. september. Rekstur
Reykjavíkurborgar skiptist í A hluta og B hluta. Til A hluta telst starfsemi
sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða
Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Til B hluta teljast fjárhagslega
sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en
rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin
eru: Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir, Félagsbústaðir hf., Íþrótta-
og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur,
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs.
og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf. 

Á árinu 2010 hefur reikningsskilaaðferð verið breytt til samræmis við álit
Reikningsskila- og upplýsinganefnd sveitarfélaga nr. 1/2010 og 2/2010. 
Breytingin felst í því að leigusamningar fasteigna og annarra mannvirkja og
leiguskuldbindingar vegna þeirra eru færðir í efnahagsreikning. Einnig eru
lóðir og lendur sem gefa af sér tekjur eignfærðar.  Eigið fé í
efnahagsreikningi borgarinnar hækkar um 13,6 milljarða við þessar breytingar.
Rekstrarniðurstaða bæði A hluta og A og B hluta er 467 milljónum króna lakari á
tímabilinu janúar - júní 2010 með nýrri reikningsskilaaðferð. 

Í fjárhagsáætlun fyrir tímabilið janúar til júní 2010 fyrir A hluta var gert
ráð fyrir því að niðurstaða fyrir fjármagnsliði yrði neikvæð um 2.426 milljónir
króna og heildarniðurstaða ársins neikvæð um 1.546 milljónir króna.  Samkvæmt
árshlutareikningi janúar til júní 2010 er niðurstaða A hluta fyrir
fjármagnsliði neikvæð um 1.396 milljónir króna og heildarniðurstaða neikvæð um
855 milljónir króna.   Í áætlun fyrir tímabilið janúar til júní 2010 fyrir A og
B hluta var gert ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu fyrir fjármagnsliði um 1.067
milljónir króna og neikvæðri heildarniðurstöðu um 1.299 milljónir króna. 
Samkvæmt ársreikningi er niðurstaða A og B hluta fyrir fjármagnsliði jákvæð um
2.327 milljónir króna og heildarniðurstaða er jákvæð um 3.070 milljónir króna. 

Rekstrartekjur A og B hluta voru 45.023 milljónir króna eða um 331 milljón
umfram áætlun og rekstrargjöld voru 42.696 milljónir króna eða 930 milljónir
undir áætlun. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 2.149 milljónir króna en áætlun
gerði ráð fyrir að þau yrðu neikvæð um 2.367 milljónir króna.  Munurinn skýrist
einkum af gengis- og verðlagsbreytingum. 

Rekstrartekjur A hluta voru 29.168 milljónir króna eða 727 milljónir yfir
áætlun.  Rekstrargjöld voru 30.564 milljónir króna eða um 304 milljónir undir
áætlun. 

Eignir A hluta voru 127.150 milljónir króna, hækka úr 97.594 milljónum króna
eða um 29.556 milljónir.  Skuldir A hluta að frátöldum skuldbindingum hækka úr
24.643 milljónum í 41.446 milljónir eða um 16.803 milljónir en skuldbindingar
lækka um 11 milljónir, úr 9.181 milljónum í 9.192 milljónir.  Eigið fé A hluta
hækkar um 12.743 milljónir úr 63.770 milljónum í 76.513 milljónir, Hækkun
eigna, skulda og eiginfjár skýrist að stærstum hluta með breytingum á
reikningsskilaaðferð. 

Eignir A og B hluta voru 442.908 milljónir króna og hafa vaxið um 26.388
milljónir króna á tímabilinu. Heildarskuldir A og B hluta að frátöldum
skuldbindingum eru 305.750 milljónir króna en voru 296.268 milljónir króna í
árslok 2009 og hafa því aukist um 9.482 milljónir króna. Skuldbindingar hækkuðu
um 171 milljón króna á tímabilinu.   Eigið fé A og B hluta hækkar um 16.735
milljónir úr 110.175 milljónum í 126.910 milljónir, sem skýrist að stærstum
hluta af rekstrarniðurstöðu tímabilsins og breytingu á reikningsskilaaðferð. 

Veltufjárhlutfall hjá A og B hluta var 0,92 þann 30.06.2010 á móti 1,03 í
árslok 2009.  Hjá A hluta var hlutfallið 2,11 þann 30.06.2010 en 2,12 í árslok
2009.

Attachments

reykjavik arshlutareikningur jan - juni 2010.pdf