Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 11 0315


Útboð á ríkisvíxlum í flokki RIKV 11 0315 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 


Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 11 0315:
Alls bárust 30 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 23.909 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 18.159 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,62 (flatir
vextir 4,20%).

Attachments

nidurstodur_rikv110315_101111.pdf