Útboð ríkisvíxla RIKV 11 0815 og RIKV 11 1115


Fimmtudaginn 12. maí kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 11 0815 og RIKV 11 1115 sem eru með gjalddaga 15. ágúst og 15. nóvember 2011.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 16. maí 2011.

Sótt verður um að RIKV 11 1115 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi þriðjudaginn 17. maí 2011.


Attachments

Utbodsskilmalar_RIKV11_090511.pdf Frett_RIKV11_090511.pdf