UNDIRRITUN SAMNINGA Í TENGSLUM VIÐ ÚTGÁFU ÍBÚÐABRÉFA OG VIÐSKIPTAVAKT Á EFTIRMARKAÐI

Í dag, 21. júní, var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við útgáfu Íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði.


Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.

 Frá 1. júlí 2011 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með Íbúðabréf". Þær eru: Íslandsbanki hf., Arion banki hf., MP banki hf., Landsbankinn hf og Saga Fjárfestingarbanki hf.

  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Íbúðalánasjóðs.
  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir.
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum Íbúðabréfa fyrir a.m.k. 600 milljónir króna.
  • Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk Íbúðabréfa í Nasdaq OMX á Íslandi.
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum.
  • Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 500 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
  • Samningurinn gildir frá 1. júlí 2011 til 30. júní 2012. Þóknun til allra aðalmiðlara íbúðabréfa á samningstímanum verður 80 milljónir króna fyrir viðskiptavakt á eftirmarkaði og 0,175% þóknun í teknum tilboðum íbúðabréfa.

 

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur samningsaðila.

 


Attachments