Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 31 0124


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 31 0124:

Alls bárust 49 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.760 m.kr. að nafnverði. 11 tilboðum var tekið fyrir 3.780 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 95,750 (6,90% ávöxtunarkröfu).

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 22. nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 23. nóvember 2011.


Attachments