Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2011


Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2011 var tekinn til fyrri umræðu í sveitarstjórn fimmtudaginn 29. mars 2012 og samþykkti sveitarstjórn að vísa ársreikningum til síðari umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða er fer fram fimmudaginn 12. apríl nk.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A og B hluta, sbr. 60 gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.

Til A hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessarra fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Hafnarsjóður, Naust og Fræ ehf.

Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2011 námu rekstrartekjur A og B hluta 589,4 millj. kr. samanborið við 553,0 millj. kr. á árinu 2010. Hækkun milli ára nemur því um 6,6%.

Rekstrargjöld A og B hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar rekstrarkostnaður og afskriftir námu á árinu 554,1 millj. kr. en voru 542,2 millj. kr. á árinu 2010. Hækkun frá fyrra ári nemur 2,2%.

Veruleg breyting er á fjármunatekjum og fjármagnsgjöldum milli ára. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2011 námu 50,3 millj. kr., samanborið við 25,3 millj. kr. á árinu 2010.

Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti ársins 2011 nemur veltufé frá rekstri 39,7 millj. kr. samanborið við 36,0 millj. kr. á árinu 2010.

Rekstrarhalli ársins nemur því 17,5 millj. kr. fyrir A og B hluta, samanborið við 14,5 millj. kr. rekstrarhalla á árinu 2010.

Frekari upplýsingar veitir:

Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri sveitarstjori@langanesbyggd.is, í síma 468 1220 eða 821-1646


Attachments